Íslandsmót grunnskólasveita í skák 2007

 


Íslandsmót grunnskólasveita í skák fór fram um helgina. Ég þjálfa börn og unglinga í Salaskóla ásamt Tómasi Rasmus, góðum vini og félaga, en við fórum með 20 börn til taflmennsku þessa helgina og skipuðu þau fimm sveitir.

Almennum lesanda gæti þótt skákmót lítt spennandi fyrirbæri, þar sem fólk situr andspænis hvort öðru, horfir á fígúrur á 64 reitum, ýtir á klukku og virðist vera gífurlega spennt yfir einhverju sem er að gerast á borðinu. Þó að ekki allir sjái þau undur og stórmerki sem gerast á þessum 64 reitum, eiga flest þeirra barna sem tóku þátt í mótinu það sameiginlegt að þau fatta þetta. Og ekki bara það, þeim finnst þetta frábær skemmtun.

Það getur verið gaman að sjá tvö börn búa til fullt af vandamálum á skákborðinu fyrir hvort annað og gera síðan sitt besta til að leysa þau. Lausnirnar eru ekki alltaf auðfundnar, en yfirleitt sigrar sá sem er útstjónarsamari og áttar sig betur á manngangi taflmannanna og tengslum allra þessara reita. Börnin þurfa að læra byrjanir sem gera þeim fært að koma sér í góða stöðu sem jafnframt býr til vandamál fyrir andstæðinginn, síðan þurfa þau að vinna úr þeim vandamálum sem andstæðingnum tekst að skapa og takist að leysa þau getur skákin unnist.

Þau þurfa að læra um sókn og vörn, áætlanir og skjót viðbrögð, tíma og rúm, siðferði og hegðun, útreikninga og innsæi, þekking og visku; og þannig fram eftir götunum. Skák er íþrótt sem reynir á þolinmæði, útsjónarsemi og hraða en jafnframt nákvæma hugsun. Þetta sýndu börnin síðustu helgi í stórum mæli. Þau sátu tímunum saman við skákborð. Sum uppskáru meira en önnur.

Mér til mikillar gleði uppskáru börnin úr Salaskóla mikið.

A-sveit Laugalækjaskóla vann mótið af miklu öryggi og fékk 33 vinninga af 36 mögulegum. Hægt er að fá 4 vinninga í hverri umferð, en fjórir liðsmenn tefla í hverri umferð og mótið er níu umferða langt. Þeir vörðu Íslandsmeistaratitil sinn og fá tækifæri til að vinna Norðurlandameistaratitil í haust, en Rimaskóli er núverandi Norðurlandameistari.

vara1409

Sigurvegarar Laugalækjarskóla. Frá vinstri: Daði Ómarsson, Vilhjálmur Pálmason, Matthías Pétursson, Einar Sigurðsson, Aron Ellert Þorsteinsson og Torfi Leósson liðsstjóri.

Í öðru sæti varð A-sveit Rimaskóla með 31 vinning. Sveitin var nokkuð örugg í 2. sætinu.

vara1405

Á myndina vantar liðstjórann Davíð Kjartansson og Sigríði Björg Helgadóttur, sem vann borðaverðlaun á 4. borði. Á myndinni frá vinstri: Ingvar Ásbjörnsson, Hörður Aron Hauksson og Hjörvar Steinn Grétarsson.

Sveitin okkar Tómasar úr Salaskóla náði svo þriðja sætinu af miklu öryggi.

vara1403

A-sveit Salaskóla. Á myndinni eru, frá vinstri: Eiríkur Örn Brynjarsson, Páll Andrason, Patrekur Maron Magnússon, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Ragnar Eyþórsson og á bakvið þá liðstjórarnir Hrannar og Tómas Rasmus.

D-sveit Salaskóla fékk viðurkenningu sem sterkasta D-sveit landsins:

vara1397

Á myndina vantar Gísla Frey Stefánsson. Frá vinstri: Garðar Elí Jónasson, Stanley Axelsson, Arnar Snæland og Birnir Axelsson. Og liðstjórarnir Hrannar og Tómas standa á bakvið.

E-sveit Salaskóla fékk viðurkenningu sem sterkasta E-sveit landsins:

vara1395

Frá vinstri: Breki Elí Arnarsson, Björn Ólafur Björnsson, Baldur Búi Heimisson, Jafet Magnússon, og að baki þeim liðstjórarnir Hrannar og Tómas.

Eiríkur Örn Brynjarsson úr Salaskóla deildi einnig verðlaunum fyrir besta árangur á þriðja borði með Matthíasi Péturssyni.

IslmotGrunnskola2007_01

1. Laugarlækjarskóli A sveit 33 vinningar af 36 mögulegum.
2. Rimaskóli A sveit 31 vinningar.
3. Salaskóli, Kópavogi A sveit 27 v.
4. Brekkuskóli Akureyri 24,5 vinningar.

5-9. Rimaskóli B sveit 19 v.

Laugarlækjarskóli B sveit 19 v.

Húsaskóli 19 v.

Hjallaskóli Kópavogi A sveit 19 v.

Hallormstaðaskóli B sveit 19 v.

10. Rimaskóli C sveit 18,5 v.

11-12. Grunnskóli Seltjarnarnes 17,5 v.

Salaskóli Kópavogi B sveit 17,5 v.

13-14. Hvaleyrarskóli Hafnarfirði 17 v.

Hallormstaðaskóli A sveit 17 v.

15. Réttarholtsskóli 16 v.

16. Salaskóli Kópavogi E sveit 15 v.

17. Salaskóli Kópavogi C sveit 14 v.

18. Salaskóli Kópavogi D sveit 12 v.

19. Hjallaskóli B sveit 5 v.

Share and Enjoy:
  • MisterWong
  • Y!GG
  • Webnews
  • Digg
  • del.icio.us
  • StumbleUpon
  • Reddit

Leave a Reply