Posts Tagged ‘John Torturro’

The Taking of Pelham 1 2 3 (2009) **

Saturday, October 17th, 2009

Layout 1

The Taking of Pelham 1 2 3″ er endurgerð samnefndrar myndar sem ég hef ekki séð. Þrátt fyrir að hafa hinn afbragðsgóða Denzel Washington og hinn afar mistæka John Travolta í aðalhlutverki, í leikstjórn hins alltaf áhugaverða Tony Scott, bróður Ridley Scott, þá er eitthvað sem klikkar í ferlinu. Mig grunar að það sé handritið og áhugi leikstjórans á aukapersónum.

Það er gert mikið úr því að gera persónu Denzel Washinton, lestarstarfsmannsins Walter Garber, að þrívíðri og djúpri persónu. Við kynnumst eiginkonu hans og skilyrðislausri ást hennar til hans, við komumst að því að hann hefur gert alvarleg mistök í starfi og að brottrekstur er á næsta leyti, og við komumst að því að hann er hugrakkari en gengur og gerist. Allar aðrar persónur eru því miður í tvívídd.

Meðal þeirra er bófinn sem John Travolta leikur, en hann kallar sig Ryder, og hann rænir við fjórða mann neðanjarðarlest í New York til þess að eignast ógeðslega mikið af peningum. Hann notar síðan Denzel Washinton sem millilið til að fá peningana í hendurnar, en að sjálfsögðu er Denzel okkar hetja sem ætlar ekki að leyfa skúrkum að komast upp með vopnað rán og morð. Honum til aðstoðar á skrifstofunni er FBI samningamaðurinn Camonetti (John Torturro) sem gefur honum góð ráð.

TakingOfPelham123_01
Denzel Washington í “The Taking of Pelham 1 2 3″

Eins og flestar aðrar myndir Tony Scott er þessi samsett af flottum tökum sem allar eru örstuttar, myndavélin er stöðugt á flugi en fókusar samt vel á atburðarrásina, en því miður mistekst kvikmyndagerðarmönnunum algjörlega í mjög mikilvægu atriði. Helsta vægið í myndinni eru farþegar lestarinnar sem teknir eru gíslingu. Þessir gíslar eru fyrir áhorfandann ekkert annað en hlutir, það er ekki einu sinni reynt að skapa persónur sem skipta máli. Það hefði ekki komið mér á óvart þó að borgarstjóri New York borgar, leikinn af James Gandolfini, hefði einfaldlega sent orrustuþotu í sjálfsmorðsárás inn í lestargöngin til að ganga frá vandamálinu.

Þá hefði að minnsta kosti eitthvað almennilegt gerst.

Mér datt í hug á meðan ég horfði á myndina að kannski hefði Denzel Washinton ekki lengur neitt merkilegt fyrir stafni fyrst Barack Obama er kominn í hvíta húsið. Hann hefur gert fjölda kvikmynda sem hafa barist fyrir sjálfsvirðingu afrísk-ameríkanska kynþáttarins, og nú er kannski kominn tími fyrir hann til að slaka á og safna auðunnum ávísunum.

TakingOfPelham123_03
John Travolta í “The Taking of Pelham 1 2 3″

John Travolta, og hinir leikararnir sem ég minntist á, eru allir ágætir í sínum hlutverkum, og persóna Travolta er meira að segja sú áhugaverðasta sem birtist, en því miður fáum við aldrei að læra neitt um hana annað en að einu sinni var hún milljarðamæringur á Wall Street sem lenti í fangelsi og nýsloppin er gaurinn ákveðinn í að græða pening á nýjan leik. Við vitum ekki af hverju hann er bitur. Kannski vegna þess að hann var að svíkja fé út úr saklausi fólki rétt eins og allir hinir, en hann var bara svo óheppinn að lenda í fangelsi fyrir glæpinn á meðan flestir aðrir ganga enn lausir.

Ég hefði vilja vita meira um hann.